|
Óskum félagsmönnum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. 

Svarta Pakkhúsið
Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ í samstarfi við Listasafnið, menningamálanefnd og menningafulltrúa, rekur Galleríi í Svarta pakkhúsinu " Galleí Kötturinn Kósý. Einnig fara þar fram ýmis námskeið og annað sem félagið býður upp á hverju sinni. Jafnframt rekur handverksfók þar sölugallerí og geta listamenn og handverksfólk í Reykjanesbæ og nágrenni komið með verk sín og gestir geta keypt eða skoðað. Þetta var hugsað sem liður í menningartengdri ferðaþjónustu. Þurfa þá viðkomendur að gerast félagsmenn í Félagi myndlistarmanna, en árgjaldið er aðeins 1.500.-
Félag myndlistarmanna velur verkin og setur þau upp. Þeir sem eru með verk til sölu sitja yfir einn dag í mánuði. Galleríið er opið alla daga frá 13.00 - 17.00.
Svarta pakkhúsið er á Hafnargötu 2 í Keflavík þar sem gamla HF var til húsa. Hægt er að fá upplýsingar hjá Hermanni Árnasyni formanni Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ í síma 8490231. Aðgangur er ókeypis.
Allir velkomnir.

Listasmiðjan - Vallarsvæðið

Fjölmargir lögðu leið sína upp á Vallarheiði 27. april 2008 þegar Listasmiðjan - Hooby Center var formlega opnuð á árlegri frístundahelgi í Reykjanesbæ.
Listasmiðjan - Hobby Center verður til afnota fyrir menningar- og tómstundahópa í Reykjanesbæ en þar hafa ýmsir hópar nú þegar komið sér fyrir s.s. Ljósop, félag áhugamanna um ljósmyndun, Einstakir, félag tréskurðamanna sem og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ en að auki hafa kórar fengið þar æfingaaðstöðu. Þá er Tölvuskóli Suðurnesja með bækistöðvar í húsinu.
Húsnæðið er um þúsund fermetrar að stærð og var byggt árið 1978. Þar var áður ýmis tómstundastarfsemi fyrir bandaríska hermenn á meðan á dvö þeirra hér á landi stóð og var reksturinn í höndum tómstundadeildar sjóhersins - húsnæðið er því sérsniðið að tómstundastarfsemi og aðstaða öll fyrsta flokks.
Boðið var upp á handverkssýningu í Listasmiðjunni sem jafnframt var sölusýning en þar sýndu m.a. félagar í Gallerý Björg og Gallerý Svarta pakkhúsið. Að auki kynntu starfsemi sína skátar, píluklúbburinn, Norræna félagið, píluklúbburinn, bíla og tækjaklúbburinn og Bifhjólaklúbburinn Ernir stillti upp bílum, tækjum og hjólum á staðnum. ( Texti og mynd fengin að láni frá Víkurfréttum ).
Gallerí Kötturinn Kósý
 Opið alla daga frá kl. 13.00 - 17.00
Gallerí Kötturinn Kósý var sett á laggirnar 7. nóvember 2008 og er algjörlega frjálst gallerí fyrir leikna og lærða. Þar getur fólk sett um sýningar í samráði við umsjónarmann. Galleríinu er ætlað að bæta við og auka umgang í Svarta Pakkhúsinu. Engin leiga er tekin fyrir aðstöðuna. Hver sýning stendur í ca. 10 - 15 daga, eða eftir samkomulagi.

|