|
Námskeið
Námskeið framundan.
Reykjanesbæ (FMR)
Málun- Landslag - Portraid - uppstilling ofl.
14.sept-19okt. Mánudagar frá kl.19.00-22.00 (6 vikur,möguleiki á framl.)
Málun( Byrjendanámskeið I ):
( Sjá verk af fyrri samskonar námskeiðum >>> )
Kennari Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
Farið markvisst í mynduppbyggingu og litameðferð. Ákveðin motíf unnin uppsett af kennara.
Nemendur hafa með sér liti og áhöld
Verð kr. 15.000 – 10% afsl. til félagsmanna.
---------------------------------------------------
23.sept-28.okt. Miðvikudagar frá kl. 19.00-22.00 ( 6 vikur,möguleiki á framl.)
Modelteikning: Kennari Jón Ágúst Pálmason
Unnið með lifandi módel, skissur. Nemendur hafa með sér teikniáhöld, liti, kol,pappír
Verð kr. 15.000- 10% til félagsmanna
LOKIÐ
Guðmundur R Lúðvíksson
Allt milli himins og jarðar
Fimmtudaga og laugardaga, úti og inni. Kennslan hefst 16. apríl. Tími ákveðinn síðar af kennara. Viðfangsefni: Skissur-að nota skissur-málun í þemaskiptum verkefnum. Verð kr. 15.000-10% afsl til félagsmanna. Þeir sem hafa gaman af því að mála, landslag, umverfismyndir, báta, bæji, eða hús, ættu ekki að láta þetta námskeið fram hjá sér fara.
LOKIÐ
Guðbjörg Theodórsdóttir
Kol á striga
Miðvikudagskvöld kl. 19.30 - 22.30 18.mars til 22.apríl. Kennslan fer fram í Listasmiðjunni. Guðbjörg er kannski ekki mjög þekkt á félagsmanna Myndlistafélagsins en hægt er að lofa að það sem boðið verður uppá er rosaskemmtilegt. Verkin eru unnin á ógunnaðan striga sem filmaður er með bókbandslími og kolakrít notuð til að teikna og lita verkin. Einnig verður kennt að strekkja striga. Boðið verður upp á það að kaupa striga og blindramma á staðnum. Verð kr. 12.000 -10% afsl. til félagsmanna
LOKIÐ
Anja Kislich - Portreit
10. mars og 17. mars kl.19.30 - 22.30 Farið verður í tæknina við að teikna andlitsmyndir. Gott fyrir alla að kunna. Verð kr. 4.500 - 10% afsláttur til félagsmanna. Kennsla fer fram í Listasmiðjunni
LOKIÐ
Guðmundur R Lúðvíksson -Frjáls málun
Mánud og miðvikudagskvöld 19.30-22.30. 19jan til 18 feb.Kennsla fer fram í Listasmiðjunni
Þetta námskeið er nokkurs konar framhald af því sem Guðmundur hefur verið að miðla til okkar á síðastliðnu ári. Án efa stórskemmtiegt og spennandi. Hentar þeim sem vilja ganga lengra í málun og nýta sér fleyri möguleika. Verð kr. 15.000 -10%afsl. til félagsmanna
LOKIÐ
Guðmudur R Luðvíksson Bókagerð - Bókakvöld
Fimmtudagskvöld 19.30-22.00 Hefst 22.jan- endar ? og verður haldið á Hafnargötu 2 (gallery kötturinn Kósý)
Farið verður í gerð öðruvísi bóka. Hentar vel handverksfólki t.d sem aukaafurð til að selja. Nánari uppl. Hjá Guðmundi í síma 615-1800. Verði á þetta námskeið er stillt í hóf kr. 4000.- fyrir allt tímabilið. Hrikalega skemmtilegt námskeið og endalausir möguleikar.
Nú stendur yfir námskeið í málun, undir handleiðslu Guðmundar R Lúðvíkssonar í Svarta Pakkhúsinu á þriðjudags og miðvikudagskvöldum. Því námskeiði líkur um áramótin.
|
Myndlistafélagið stendur fyrir fjölda námskeiða ár hvert. Fengnir eru leiðbeinendur í hinum ýmsu listaðferðum, málun, teikningu og fl. All nokkur fjöldi félagsmanna hefur sótt þessi námskeið, en þau fara fram oftast í Svarta Pakkhúsinu eða nú í hinni nýju glæsilegu aðstöðu sem félaginu var úthlutað af Reykjanesbæ - Listasmiðjunni á vallarsvæðinu ( Kanarý ) .
Myndir af námskeiðum:
|