Øað efla myndlist og listvitund í bæjarfélaginu með sem víðtækustum hætti
Øað vera málsvari myndlistamanna og gæta hagsmuna þeirra
Øað leitast við að skapa myndlistamönnum aðstöðu til sýninga í bæjarfélaginu
Øað efla með öllum tiltækum ráðum aðstöðu til námskeiðahalds í myndlist bæði hvað varðar húsnæði og leiðbeinendur
Øað efla samband við vinabæi Reykjanesbæjar og önnur myndlistafélög
3. grein
Félagsmenn geta orðið allir þeir sem áhuga hafa á sköpun myndlistar.
4.grein
Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert.Til hans skal boðað með minnst viku fyrirvara. Starfs- og reikningsár félagsins skal vera frá 1. maí til 30. apríl.
5.grein
Á aðalfundi skal kosin fimm manna stjórn og skal formaður kosin sérstaklega. Aðrir í stjórn skipta með sér verkum á fyrsta fundi stjórnar. Þá skal á aðalfundi kosinn einn varamaður í stjórn og tveir endurskoðendur.Stjórn skal halda gerðabók.
6.grein
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1.setning
2.kosning fundarstjóra og fundarritara
3.skýrsla stjórnar
4.endurskoðaðir reikningar lagðir fram
5.umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga
6.lagabreytingar
7.Inntaka nýrra félaga
8.kosning stjórnar og varamanns skv. 5.grein
9.kosning tveggja endurskoðenda skv. 5.grein
10.ákvörðun um árgjald
11.önnur mál
7.grein
Stjórn félagsinsfer með umboð þess og ákvörðunarvald næst aðalfundi og kemur fram fyrir hönd félagsins.
8.grein
Almennir félagsfundir skulu haldnir milli aðalfunda eftir því sem þurfa þykir að mati stjórnar.Einnig skal félagsfundur haldinnef þriðjungur félagsmanna æskir þess með skriflegum hætti.
9.grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf til þess ¾ atkvæða, enda hafi breytinganna verið getið í fundarboði.
10.grein
Ekki má leggja félagið niður nema með samþykki allra fundarmanna á aðalfundi.
11.grein
Leggist félagið niður af einhverjum ástæðum, skulu eignir þess ganga tilReykjanesbæjar til varðveislu.
12.grein
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi í maí 2002.Breytingar á lögum þessum voru samþykktar í maí 2008.