|
|
Þann 26. maí næstkomandi verður aðalfundur félagsins haldinn í Svarta Pakkhúsinu Hafnargötu 2 og hefst hann kl. 20.00. Fyrir aðalfundi liggja fyrirhugaðar breytingar á orðalagi í annari og þriðju grein laga þ.e að fella út orðið MYND í nokkrum málsgreinum ( sjá lög félagsins í rennunni fyrir ofan) Þessi breyting er fyrirhuguð til að færa lög félagsins nær þeim fjölbreytta og ólíka listhópi sem er í félaginu. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér þetta og mæta síðan galvösk á aðalfund!
Það er ljóst að einhverjir hverfa úr stjórn á næsta aðalfundi og er hér hvatning til allra sem áhuga hafa á að koma í stjórn félagsins að hafa samband við formann sem fyrst með tölvupósti (2hemmi@gmail.com) . Mjög skemmtilegt og gefandi starf sem enginn verður svikinn af..!!
26.maí kl 20.00 muna að taka kvöldið frá!!!!
Aðalfundur Félags Myndlistamanna í Reykjanesbæ var haldinn í bíósalnum í DUUS húsum þann 26. maí síðastliðinn.Í tilefni 15 ára afmælis félagsins var boðið upp á afmælistertu og kaffi í lok fundar. Því miður var frekar dræm mæting en þó verður að taka tillit til þess að við þurftum að halda þennan fund inn í miðri kosningabaráttu samkvæmt lögum félagsins. Mættir voru 25 með stjórn af um 180 félagsmönnum ....... :(
Sjá myndir hér>>
Sett hafa verið upp vornámskeið. Skráning á þau eru hjá MSS. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna undir námskeiðsflipanum hér að ofan.
Þann 19.febrúar næstkomandi kl. 14.30 verður haldinn fyrirlestur í Listasögu í bíosal DUUs húsa. Fyrirlesari er Þuríður Sigurðardóttir söngkona og myndlistakona. Félagar takið daginn frá, mætið og takið með ykkur gesti. Við hjá FMR lofum ykkur fræðandi og skemmtilegum fyrirlestri!
|
|
Eldri tilkynningar
Heklan, atvinnuþróunarfélag með aðsetur í Eldey á Ásbrú hefur sett sig í samband við okkur og beðið okkur um að koma því á framfæri við listamenn á Suðurnesjum hvort þeir geti lánað verk til að hengja á veggi þeirra. Áhugasamir geta sett sig í samband við Björk Guðjóns bjork@heklan.is Sími/Tel: +354 894 1116/+354 420 3280
Komin eru á dagskrá hjá okkur í vetur 3 námskeið. Þau eru eftirfarandi
Frjáls málun (Fyrir lengra komna): Kennari Bjarni Sigurbjörnsson. 8 kvöld. Hefst 27 janúar.
Portrait teikning: Kennari Eric Hearn. 6 kvöld. Hefst 3.febrúar
Frjáls málun (fyrir byrjendur og lengra komna): Kennari Helga Kristjánsdóttir. 8 kvöld. Hefst 2.febrúar
Allar upplýsingar og skráningar á námskeið fer fram hjá Miðstöð Símenntunar Á Suðurnesjum í síma 421-7500 og á mss@mss.is , Nánar á www. mss.is undir liðnum ýmis námskeið. FMR hvetur alla Suðurnesjamenn/félagsmenn til að skrá sig sem fyrst. Verð á námskeiðum er stillt í hóf. FMR hvetur allatil að athuga með styrki frá aðildarfélögum.
Nánari útlistun í rennunni (Námskeið) |