Félag myndlistafólks í Reykjanesbæ.


Samsýning opnar í Gallerý Kötturinn Kósý.
Á Sumardaginn fyrsta opna Lára María Ingimundardóttir, Valur Freyr Ástuson og Ástvaldur Ragnar Bjarnason sýningu á verkum sínum kl. 15.00. Allir velkomnir.
SJÁ MYNDIR: >>>

Ný sýning opnar í Gallerý Kötturinn Kósý  á fimmtudag 22. maí kl. 20.00. Magga P og Hafdís Björg opna sýningu í Gallerý Kötturinn Kósý n.k fimmtudag. Félagmnenn og gestir eru hvattir til að mæta. Uppl gefur Hafdís í síma 867 3329

Dagskrá listar án Landamæra
hefst Sumardaginn fyrsta í Leikhúsinu kl.13.00. Kl. 14.00 opnar sýningin Glerborgir í Dushúsum Bíósal, og kl. 15.00 opnar samsýning í Gallerý Kötturinn Kósý í Svarta Pakkhúsinu.  SJÁ MYNDIR <<<


 

Fengu flotta umfjöllun í dagblaði í þýskalandi.

Daníel, Guðmundur og Hermann tóku þátt í sýningu í Leipzig í Þýskalandi fyrir stuttu.

Fengu þeir fína umfjöllun í stóru blaði sem þar er gefið út. Þeir sem kunna Þýsku geta lesið greinina hér; >>>


Í tilefni frístundahátíðar sem fram fer laugardaginn 25 apríl frá kl.14 til 18 er fyrirhuguð samsýning í nýja salnum í Listasmiðjunni. Einnig verður vinnuaðstaða okkar opin. Þeir sem hafa áhuga á að sýna sig og verk sín eru beðin að mæta uppeftir á þriðudagskvöldið næsta 21apríl kl.20.00 með verkin sín. Þar sem frekar fáir geta sett upp verk í sýningarsalnum verður valið úr verkum sem þangað fara. (aðeins eitt frá hverjum) En að sjálfsögðu geta félagar sýnt fleirri verk í vinnuaðstöðunni okkar því allt skal vera opið þennan dag. Þannig að þau ykkar sem ætla að vera með, verða að taka laugardaginn frá því fólk verður að vera við á staðnum allan daginn..!
Kveðja Stjórn FMR

 

 

 

 

 

 

 


 

12.03.09 / 100 - 150 heimsóknir á dag.
Frá því að heimasíðan var sett á laggirnar hafa á meðaltali verið um 100 - 150 heimsóknir á síðuna hvern dag. Það er kanski ekki rosalega mikið en þó ásættanlegt. Félagsmenn mættu vera virkari að senda okkur upplýsingar um sig og verk sín og svo ekki sé talað um atburði sem framundan eru.

Helga Jónsdóttir sýnir
í Gallery Kötturinn
 Kósý
í Svarta Pakkhúsinu.
Nú stendur yfir sýning á verkum eftir Helgu Jónsdóttir á verkum unnin úr íslenskri ull.
Skoða myndir:



12.03.09/  Útvíkkun 9,5 - Sýningu að ljúka.
Um helgina líkur sýningunni " Útvíkkun 9,5 ".
Við tekur sýning frá ljósmyndafélaginu og eftir hana, eða sumardaginn fyrsta er fyrirhuguð samsýning allra sem að Listamiðstöðinni standa. Mun þá sýningasalurinn formlega verða tekin í notkun.

Bærinn afhendir ofna !
Valgerður Guðmundsdóttir hefur tilkynnt félaginu að það eigi ágætis brennsluofna fyrir leir og gler og vill koma upp aðstöðu í Listasmiðjunni. Nokkrar konur í félaginu hafa að undanförnu verið að skoða þessa möguleika og er líklegt að þessari aðstöðu verði komið fyrir innan skamms.

Mikil aðsókn á námskeið;
Mikil og góð þátttaka hefur verið á námskeið hjá félaginu að undanförnu.
Á næsta námskeið sem hefst á þriðjudag 10. mars og er portredteikning og litun með pastel, hjá Anja Kislich og er þar fullbókað.

04.03. 2009 Sunnan 9 hópurinn hittist
í dag á Kaffitár og skoðaði sýninguna sem þar stendur nú yfir. Hópurinn hefur verið sérlega virkur og sett upp nokkrar flottar sýningar á stuttum tíma. 
 
Gríðaleg ánægja með opnun sýningarinnar
" Útvíkkun 9,5 "
 .
All nokkrir hafa tjá okkur ánægju sína sem lögðu leið á sýninguna um helgina.
Sérstaklega hefur fólk haft orð á og lýst ánægju sinni með að boðið var upp á heimalagað bakkelsi að ramm íslenskum sið og kaffi, og að ekki hafi verið vín haft um hönd.


Bænum færð óvenjuleggjöf frá listamönnum sem þakklætisvott fyrir velvild í garðs listalífsins.

Lesa meira:>>>
------------------

Heimasíða Ljósmynda
klúbbsins.


Líf og fjör í Svarta Pakkhúsinu !
Eins og allir vita er rekið flott og ódýrt handverksgallerí í Svarta Pakkhúsinu alla daga. Þar er hægt að versla gjafavörur á flottum verðum og allir hlutir eru handunnir. Opið er alla dag vikunnar frá kl. 13.00 - 17.00 og kaffi er auðvitað á könnunni.

Myndlistafélagið styrkir 3 listamenn í félaginu til sýningahalds í Þýskalandi sem opnuð verður 3. apríl í Leipzig.
Lesa meira >>>



28. febr. 2009
Opnun á sýningunni
" Útvíkkun 9,5 "

Myndir>>>
Á annað hundrað manns mætti á opnun sýningarinnar í Listasmiðjunni.

-------------------
Grillað og nýr salur tekin í gegn.
Laugardaginn 14. febrúar kom saman hópur af myndlistarfólki úr félaginu og vann við að mála og taka nýjan glæsilegan sýningarsal í gegn >>> ( Lesa og sjá meira )

-------------------

Hörku gangur
er á námskeiðinu sem nú stendur yfir í Listasmiðjunni.

Sjá myndir 1>>>

Sjá myndir 2 >>> 

AUGLÝSING:


Nafn vantar á nýja sýningarsalinn í Listasmiðjunni ! Lumar þú á flottu nafni ??? Sendið okkur hugmyndir ásamt ykkar nafni. Við kynnum svo hugmyndirnar hér og látum net kjósa hér á síðunni seinna.

Fyrsta sýning í salnum fer fram 28. febrúar 2009.

-------------------

Nafnspjöld í félagskrá á netinu:


Þeir félagsmenn sem vilja kynna sig hér á síðunni, býðst að sett verði svona nafnspjald með nafni og upplýsingum ásamt einni sér síðu með myndum af verkum. Hafi félagsmenn áhuga á þessu þurfa þeir að láta vita.  Hver uppsetning kostar 1.500.-

--------------------

Liðnarfréttir:Bréf  frá Hermanni Árnasyni,formanni. >>>Lesa
Galley Kötturinn Kósý >>>Lesa
Liðnar sýningar>>>Lesa
Opnun í Gallerí Kötturinn Kósý >>>Skoða myndir
Félagið hefur í ljósi ástandsins (kreppunar) að lækka námskeiðsgjöld í vetur, auk þess fá félagsmenn 10%afslátt.
Námskeiðs áætlunin er inni í blaðinu og á netinu

Félagar !
Sendið okkur emailið ykkar svo hægt verði að koma upp skrá fyrir félagið.

Stór- s
ýningin
" Útvíkkun 9,5 " opnar á laugardag
28.febrúar kl. 16.00 en þá opna 14 listamenn sýningu í nýjum sýningasal í Listasmiðjunni. Allir eru velkomnir. Léttar veitingar og lifandi tónlist.

Mynda glugginn:
Verk nemenda af síðasta námskeiði:
SKOÐA

Svarta Pakkhúsið

Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ í samstarfi við Listasafnið, menningamálanefnd og menningafulltrúa,  rekur Galleríi í Svarta pakkhúsinu " Galleí Kötturinn Kósý. Einnig fara þar fram ýmis námskeið og annað sem félagið býður upp á hverju sinni. Jafnframt rekur handverksfók þar sölugallerí og  geta listamenn og handverksfólk   >>>  (Lesa meira ).

Listasmiðjan - Vallarsvæðið

Fjölmargir lögðu leið sína upp á Vallarheiði 27. april 2008 þegar Listasmiðjan - Hooby Center var formlega opnuð á árlegri frístundahelgi í Reykjanesbæ.

Listasmiðjan - Hobby Center verður til afnota fyrir menningar- og tómstundahópa í Reykjanesbæ en þar hafa ýmsir hópar nú þegar komið sér fyrir s.s. Ljósop, félag áhugamanna um ljósmyndun, Einstakir, félag tréskurðamanna sem og Félag myndlistarmanna í >>> ( Lesa meira).


11. kour og 1. karl.

Námskeiði lauk með sýningu í Listasmiðjunni
að Ásbrú 10.apríl. Fjöldi fólks sótti sýninguna.
Smelltu á bókina hér og skoðaðu sýninguna:

 

----------------------------------


14. janúar kl. 20.00 opnar sýning og Vísnavinir koma fram í Listasmiðjunni.

Þeir sem koma fram eru m.a Halli Reynis, Tómas Malmberg, Geir Ólafs ofl. 
Kósý kvöld með borðum og kertaljósum.
Boðið upp á kaffi.
Aðgangseyrir 500.- kr. - Fjölmennum.

Eftirtalin námskeið verða í boði eftir áramót ( 2010 ):

26.janúar-30.mars. Þriðjudagar frá kl 19.30-22.30 (10 kvöld).
Kennari: Hermann Árnason

1.febrúar-22.mars Mánudagar frá kl.19.00-22.00 (8 kvöld.)
Málun ofl:  Kennari Guðmundur Rúnar Lúðvíksson

3.mars-7.apríl  Miðvikudagar frá kl. 19.00-22.00
Modelteikning: Kennari Jón Ágúst Pálmason

4febrúar-11.mars. Fimmtudagar frá kl.19.00-22.00 (6 kvöld.)Teikning(grunnur): Kennari Eric Hearn

Öll skráning á námskeiðin fer fram hjá MSS í síma 421-7500 og inná mss@mss.is Hámarksþátttaka á námskeið eru 12. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig tímanlega

Veittur er 10% afsláttur af námskeiðum til félagsmanna FMR

--------------------------------------

Vetrarstarfið að komast í fullan gang.
Námskeiðin eru hafin hjá FMR. Fyrsta námskeiðið hófst í Listasmiðjunni mánudagskvöldið 28. sept. Hægt er að nálgast upplýsingar hjá MSS um öll námskeið félagsins sem eru í boði.


Á meðan bæjarbúar fóru út á land og nutu veðurblíðunnar, þá var Hermann í banastuði hér heima og málaði Pakkhúsið ásamt því að betrumbæta myndina utan á Pakkhúsinu.


Bíll frá Handverkshúsinu mun heimsækja Svarta Pakkhúsið.
Á næstunni mun bíll frá handverkshúsinu koma við í Svarta Pakkhúsinu og bjóða félögum verkfæri og vörur á flottu verði, beint úr bílnum þeirra. Félagar eru hvattir til að fylgjast með þegar bíllin kemur hér á síðunni eða í Pakkhúsinu.


 

Sýning í Keflavíkurkirkju á Ljósanótt 2009.

Hugmynd er nú á borðinu að leita til listamanna til að taka þátt í sýningu á Ljósanótt 2009 í Keflavíkurkirkju undir þemanu " Leyfið börnunum að koma til mín ". Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að senda mail með upplýsingum.